Uppgjör og lykiltölur
Rekstrarniðurstaða ársins endurspeglar styrk Búseta
Byggingarverkefni á vegum Búseta á síðustu árum hafa fært félaginu margvísleg verðmæti, ekki síst með aukinni flóru fasteigna sem félagsmönnum standa til boða á áhugaverðum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Nýbyggingaverkefni Búseta hafa staðist áætlanir hvað varðar tíma og fjárhag og standast tímans tönn þegar kemur að hönnun og útfærslu.
Frá árinu 2020 hefur verið gerð úttekt á starfsemi Búseta hvað varðar umhverfis- félags- og stjórnarhætti (UFS) í samstarfi við Reitun. Búseti fékk 74 stig af 100 mögulegum í UFS mati Reitunar. Það er vel ofan meðaltals í öllum flokkum í samanburði við aðra innlenda útgefendur skuldabréfa sem hafa farið í gegnum UFS greiningu hjá Reitun.
Einnig hefur Búseti átt samstarf við ráðgjafarsvið EY (Ernst og Young) til að gera úttekt á fjárhag, starfsemi og skuldbindingum félagsins í samræmi við lög um um húsnæðissamvinnufélög. Úttektir sem þessar snúa m.a. að því að varpa ljósi á að félagið sé sjálfbært til lengri tíma. Einnig felur slík úttekt í sér skoðun á útgreiðslum félagsins. Þannig er m.a. gengið úr skugga um að hjá félaginu sé ekki um að ræða útgreiðslu arðs eða hvers konar ígildi arðs. Helstu niðurstöður þessarar könnunar eru þær að félagið viðhefur heilbrigða stjórnarhætti og stendur á traustum fótum um leið og fjárhagsstaða þess hefur styrkst.
Starfsemi og rekstur Búseta og Leigufélags Búseta þykja til fyrirmyndar og félögin eru meðal þeirra sem hlutu viðurkenningar frá CreditInfo og Viðskiptablaðinu á síðasta ári líkt og fyrri ár.
Eignir
Heildareignir Búseta aukast um 23% á milli ára og hafa tvöfaldast á síðastliðnum fimm árum.
Eignir og eigið fé
Eiginfjárhlutfall hefur aukist undanfarin ár og var 43,9% í árslok 2021 sem sýnir styrk samstæðunnar.
Rekstrarkostnaður
Eftirfarandi súlurit sýnir þróun rekstrarkostnaðar samstæðu í samhengi við fjölgun eigna.
LYKILTÖLUR REKSTRAR | 2021 | 2020 |
---|---|---|
Rekstrartekjur | 2.278.522 | 2.023.968 |
Tekjur vegna sölu búseturétta | 828.614 | 663.787 |
Rekstrarkostnaður eigna | (671.998) | (516.037) |
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | (185.686) | (176.605) |
Rekstrarafkoma | 2.275.650 | 2.024.555 |
Matsbreyting | 10.527.795 | 2.991.956 |
Fjármagnsliðir | (2.043.409) | (1.557.264) |
Afkoma ársins | 8.579.003 | 2.757.578 |
LYKILTÖLUR EFNAHAGS | 2021 | 2020 |
---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 63.013.456 | 48.561.460 |
Nýbyggingar í vinnslu | 198.615 | 2.618.175 |
Handbært og bundið fé | 417.046 | 559.402 |
Heildareignir | 63.878.490 | 52.028.957 |
Eigið fé | 28.051.043 | 19.472.039 |
Skuldir við lánastofnanir | 27.207.794 | 26.042.915 |
Eiginfjárhlutfall | 43,9% | 37,4% |
Eignir samtals, breyting milli ára | 23% | 12% |
Veðhlutfall | 43% | 50% |