Traust félag sem byggir á kjarnahæfni starfsfólks og góðum stjórnarháttum
Búseti er húsnæðissamvinnufélag að norrænni fyrirmynd sem býður einstaklingum og fjölskyldum upp á íbúðir með áherslu á langtímahugsun og húsnæðisöryggi. Sjálfbærni er samofin menningu og starfsemi Búseta. Félagið eru í eigu allra félagsmanna og jafnan opið öllum óháð aldri og búsetu. Félagið á hátt í 1.200 íbúðir höfuðborgarsvæðinu og var í árslok með 109 íbúðir í bígerð. Innan samstæðu Búseta er að finna Leigufélag Búseta sem leggur áherslu á að hlúa vel að leigjendum.
Mikil aukning varð í sölu búseturétta á árinu 2021 og sala íbúða í nýbyggingum sjaldan verið meiri.
Að meðaltali fluttu 22 íbúar í mánuði inn í íbúð hjá Búseta og Leigufélagi Búseta.
Hjá Búseta starfar sextán manna samheldinn og skapandi hópur þar sem kynjaskipting er jöfn. Markmið Búseta er að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks Búseta gerir vinnustaðinn skemmtilegan og lagt er upp úr að hlúa vel að starfsfólki. Starfsfólk Búseta er í góðu samstarfi við allmarga trausta verktaka sem starfa í þágu félagsins.
Stjórn og framkvæmdastjóri Búseta leggja áherslu á góða stjórnarhætti en þannig er lagður grunnur að ábyrgri stjórnun og ákvarðanatöku. Með því að smella á eftirfarandi tengil má lesa starfsreglur stjórnar
Aðalstjórn
Jón Ögmundsson, formaður
Finnur Sigurðsson
Helga Egla Björnsdóttir
Erna Borgný Einarsdóttir
Valur Þórarinsson
Varamenn stjórnar
Hildur Mósesdóttir
Gunnlaugur Magnússon
Endurskoðandi
Hólmgrímur Bjarnason, löggiltur endurskoðandi Deloitte ehf.